
Hafnarhús
til
Þetta er einstakt tækifæri til þess að heyra listakonuna segja frá verkum sínum og hugmyndinni að baki sýningarinnar.
Kristín er einn afkastamesti og ástsælasti listamaður samtímans sem á að baki fjölmargar viðamiklar sýningar og verk víða í opinberri eigu.
Kristín Gunnlaugsdóttir hefur vakið athygli fyrir að vera óhrædd við að brjóta upp myndmál sitt og aðferðir. Hún sækir í aldagamlar hefðir íkonamálunar og skapar fígúratíf málverk sem byggjast á margslungnu táknkerfi. Þá vinnur hún abstraktverk sem kallast á við tjáningarmáta módernismans, sem og vandlega útfærð útsaumsverk sem byggja á skjótunnum skissum - svo nokkur dæmi séu tekin. Á sýningunni fæst gott yfirlit yfir feril listakonunnar um leið og þar má sjá ný og óvænt verk sem sérstaklega eru unnin að þessu tilefni.