Fara beint í efni

Reykjavík Dance Festival | Tilfinn­inga­skólinn

til

Reykjavík Dance Festival | Tilfinningaskólinn

Reykjavík Dance Festival | Tilfinningaskólinn

Hafnarhús

til

Tilfinningaskólinn er alþjóðlegt samstarfsverkefni Reykjavík Dance Festival, Rosendal Teater (NO) og Fondazione Piemonte dal Vivo / Lavanderia a Vapore (ÍT).

Verkefnið, sem nýtur stuðnings Erasmus+-áætlunarinnar, er skipað ungu fólki á aldrinum 16–20 ára. Markmið þess er að efla tilfinningalæsi, skapandi sjálfstæði og þátttöku í samfélaginu með listrænni tjáningu og sviðslistum.

Í stað þess að byggja á hefðbundnum menntunarformum eru listrænar rannsóknir og tilraunir nýttar til að kanna tilfinningar sem mikilvæga þekkingu – bæði fyrir einstaklinginn og samfélagið. Ferlið stendur yfir í meira en ár og fer fram í þremur Evrópulöndum, en því lýkur með alþjóðlegum viðburði á Reykjavík Dance Festival á Íslandi í nóvember.