Reykjavík Dance Festival | Radio Bounce – Ways to Exist / Ways to Resist
til

Reykjavík Dance Festival | Radio Bounce – Ways to Exist / Ways to Resist
Hafnarhús
til
Ungt fólk frá Ítalíu, Noregi og Íslandi stendur fyrir viðburði sem tekur á sig mynd útvarpsstöðvar í raunheimum. Dagskráin mun innihalda spjall, viðtöl, umræður, stutta heimildaþætti, tónlistaratriði, danspartí og dass af skipulagðri óreiðu.
Hlustið á Radio Bounce á tíðninni FM 106,1 laugardaginn 14. nóvember 2026.
Viðburðurinn verður einnig lifandi þar sem hægt er að koma og hitta okkur og upplifa verkið í Fjölnotasal Listasafns Reykjavíkur, Hafnarhús.
Hópurinn er tímabundinn og skipaður skapandi ungu fólki frá Íslandi, Noregi og Ítalíu. Hann varð til í kjölfar Erasmus+ verkefnis sem náði til landanna þriggja og vinnur með hljóðmiðlun í þeim tilgangi að endurheimta bæði líkamlega og stafræna nærveru sína í hinu opinbera rými.
Styrkt af Erasmus+ Þær skoðanir og viðhorf sem hér koma fram eru eingöngu á ábyrgð höfunda og endurspegla ekki endilega afstöðu Evrópusambandsins eða Framkvæmdaskrifstofu Evrópusambandsins á sviði mennta- og menningarmála (EACEA). Hvorki Evrópusambandið né EACEA bera ábyrgð á þeim.