Fara beint í efni

Reykjavík Dance Festival | Papa – Halla Ólafs­dóttir og Sindri Runudde

til

Reykjavík Dance Festival | Papa – Halla Ólafsdóttir og Sindri Runudde

Reykjavík Dance Festival | Papa – Halla Ólafsdóttir og Sindri Runudde

Hafnarhús

til

Halla og Sindri sitja saman undir skýi sem svífur yfir sviðinu og eiga endalaust samtal um feður við tólnlist samda af Planningtorock. Samtalið teygir sig út yfir salinn og skapar mjúkan heim ímyndaðra pabba.

Papa er sýning sem reikar á milli minninga, draumaheims og síbreytilegra sjálfsmynda. Með föðurímyndina að leiðarljósi fara dans og húmor hönd í hönd. Pabbabrandarar, lélegir brandarar eða sorglega lélegir brandarar.

Halla og Sindri hafa ólíka reynslu af föðurímyndum í lífi sínu: Sindri glímir við „daddy issues“ en Halla er svokölluð „pabbastelpa“. Úr þessu verður samtal þar sem velt er upp hugmyndum um karlmennsku og vald, þrá og umhyggju. Papa er léttleikandi sýning með hinsegin heilindum sem nær til allra sem eiga í sambandi við föður, hvort sem er nær- eða fjarverandi pabba sem um ræðir.

Halla & Sindri nálgast sýninguna sem ferðalag þar sem samskiptin við áhorfendur skipta ekki síður máli en útfærslan. Umönnun er hugtak sem oft er litið á sem kvenlegan eiginleika eða er tengt kvenlægum starfsgreinum. Tvíeykið vill því kanna hreyfingar sem tengjast hugmyndinni um umönnun og velta fyrir sér hvernig þær mótast af feðraveldinu.

Papa leitast við að skapa mjúkt rými í gegnum leikandi samtal sem heldur áfram og teygir sig yfir áhorfendarýmið og skapar svigrúm fyrir ígrundun og samhljóm. Með Papa vill tvíeykið kanna hvernig sjálfsmynd mótast í tengslum við fyrirmyndir og hvernig við getum endurskilgreint hugmyndir um vald og ást í samfélagi samtímans.

Halla Ólafsdóttir er danshöfundur og dansari sem útskrifaðist úr mastersnámi í kóreógrafíu við SKH (sem áður hét DOCH) og úr dansaranámi við Balettakademien í Stokkhólmi. Samruni há- og lágmenningar er Höllu huglægur í listrænni vinnu og er einkennandi í verkum hennar. Hún notast oft við þekkt minni úr list, dægurmenningu og dansi og rannsakar hvað gerist þegar sett er í nýtt samhengi. Halla hefur sýnt eigin verk víða um Svíþjóð og á alþjóðlegum vettvangi. Meðal verka hennar eru Romeo & Julia-lotan (2018–2024), unnin með Íslenska dansflokknum, Ballet Basel og Gertnärplatsteater, Sylph(2023) með Cullberg, Beauty & The Beast(2011–2025), Bitchcraft(2017–2025) og The Knife(2013-2014).