Fara beint í efni

Reykjavík Dance Festival | Opnun­ar­hóf- finum fiðr­inginn saman!

til

Reykjavík Dance Festival | Opnunarhóf- finum fiðringinn saman!

Reykjavík Dance Festival | Opnunarhóf- finum fiðringinn saman!

Hafnarhús

til

Það er alveg sérstök tilfinning þegar fólk safnast saman rétt áður en eitthvað svakalegt gerist. Þú hittir fólk, horfir í augun á einhverjum, færð þér drykk og finnur fiðringinn í loftinu. Svolítið eins og að horfa á góða hryllingsmynd í faðmi fjölskyldunnar.

Við opnum RDF 2026 í Listasafni Reykjavíkur með stuttum ávörpum og lyftum glösum fyrir dansinum, listafólkinu og öllu því sem bíður okkar næstu fimm daga.

Svo dimmum við ljósin.

Kvöldið heldur áfram í sérútbúnu sýningarrými RDF í Portinu. Þar fáum við að upplifa Black eftir Oulouy. Krump, Coupé-Décalé, Ndomboló og Afrohouse koma saman í sýningu sem hefur farið sigurför um dansheiminn og kemur nú loksins til Reykjavíkur.

Opnunarmóttakan er ókeypis og öll eru velkomin. Miðar á Black fást á Tix.is.

Komdu og finndu fiðringinn á RDF 2026!