Fara beint í efni

Reykjavík Dance Festival | hryggr – Bára Sigfús­dóttir

til

Reykjavík Dance Festival | hryggr – Bára Sigfúsdóttir

Reykjavík Dance Festival | hryggr – Bára Sigfúsdóttir

Hafnarhús

til

hryggr er ljóðrænt verk sem höfðar til allra skynfæra; þar sem líkami mætir hafi og mörk manneskjunnar, náttúrunnar og fantasíunnar leysast smám saman upp.

Með hreyfingu tekur líkaminn hægt og rólega á sig ný form; þannig skapast rými fyrir annars konar myndir, hrynjanda og orku. Líkami, hljóð og rými renna saman í einn heim þar sem flakkað er á milli þess áþreifanlega og þess draumkennda, á milli raunveruleika og ímyndunar. Áhorfendum býðst að hugleiða sín eigin tengsl við hafið, við náttúruna og hið óþekkta.

Titillinn hryggr hefur tvíræða merkingu. Orðið getur skírskotað til Mið-Atlantshafshryggjarins, sem úr geimnum líkist gríðarstórri hryggjarsúlu sem þræðir sig gegnum hafið, en einnig til sorgarinnar sem vaknar við náttúrueyðingu okkar tíma. Verkið er samið af danshöfundinum Báru Sigfúsdóttur í samstarfi við tónskáldið Eivind Lønning og listakonuna Andreu Kränzlin sem býr og starfar í Antwerp.

Bára Sigfúsdóttir er þekkt fyrir líkamlega nákvæm og djúpstæð verk, þrungin ljóðrænu næmi. Verk hennar hafa verið sýnd á ýmsum sýningarstöðum og hátíðum víða um heim, svo sem á Feneyjatvíæringnum, Listahátíð í Reykjavík, Ice Hot Nordic Dance Platform, Tanzmesse, Performatik og Julidans, svo fátt eitt sé nefnt.