Fara beint í efni

Opnun | Útskrift­ar­sýning í arki­tektúr, hönnun og mynd­list

til

Opnun | Útskriftarsýning í arkitektúr, hönnun og myndlist

Opnun | Útskriftarsýning í arkitektúr, hönnun og myndlist

Hafnarhús

til

Listasafn Reykjavíkur hýsir útskriftarsýningu nemenda á BA stigi í arkitektúrdeild, hönnunardeild og myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Opnun sýningarinnar er laugardaginn 9. maí kl. 13:00, öll velkomin.

Á útskriftarsýningu í arkitektúr, hönnun og myndlist árið 2026 sýna um 88 nemendur Listaháskólans verk sín. Í gegnum nám sitt hafa nemendur þróað aðferðafræði sína og skilgreint og dýpkað áhugasvið sín.

Verkin á sýningunni endurspegla þessa þróun, þar sem nýjustu rannsóknir þeirra fá form í ólíkum miðlum – í myndböndum, prentefni, teikningum, fatnaði, líkönum, þrívíðum verkum og vefsíðum. Hver nemandi nálgast samtímann frá sínu sjónarhorni en í verkum á sýningunni má greina vangaveltur umbreytt miðlalandslag, handverkshefð, samband líkama og fatnaðar, samkennd með skordýrum, tækifæri fólgin í smáiðnaði, söfnunaráráttu, verbúðir, berskjöldun og yfirþyrmandi stofnanir.

Sýningastjórar:
Anna Karlsdóttir og Jan Dobrowolski, arkitektúr
Arnar Ásgeirsson, myndlist
Arnar Már Jónsson, fatahönnun
Björn Steinar Blumenstein, vöruhönnun
Hrefna Sigurðardóttir, grafísk hönnun

Sýningin stendur til 17. maí