Fara beint í efni

Opnun | List­vinnzlan: Ómur

til

Opnun | Listvinnzlan: Ómur

Opnun | Listvinnzlan: Ómur

Ásmundarsafn

til

Verið velkomin á opnun sýningarinnar í Listasafni Reykjavíkur – Ásmundarsafni, laugardag 14. nóvember kl. 15.00

Sýningin Ómur á sér rætur í Selárdal þar sem listafólk sem vinnur að verkum sínum í Listvinnzlunni skapaði verk í samtali við listheim Samúels Jónssonar.

Listvinnzlan er listamiðstöð og faglegur vettvangur í miðborg Reykjavíkur þar sem fatlað listafólk skapar og þróar list sína.

Þessi sýningin var á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík sumarið 2026. Nú hefur hún ferðast í Ásmundarsafn og mætir þar verkum Ásmundar Sveinssonar í nýju samhengi, auk þess sem ný verk og nýir sýnendur hafa bæst í hópinn.

Í Selárdal myndaðist sterkur ómur milli verka listafólksins og sköpunar Samúels, sem var sjálfmenntaður og vann utan meginstrauma listalífsins eftir eigin sýn. Sú saga á enn erindi í dag. Fatlað listafólk býr yfir sterkum og persónulegum listrænum röddum en mætir enn hindrunum innan listasenunnar. Í Ásmundarsafni heldur samtalið áfram, nú í nánd við verk Ásmundar sem skapaði sér einnig einstakan heim þar sem list, arkitektúr og umhverfi mætast.

Sýningastjóri
Margrét M. Norðdahl