Fara beint í efni

Opnun | Karin Sander 1957-2057

til

Opnun | Karin Sander 1957-2057

Opnun | Karin Sander 1957-2057

Hafnarhús

til

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Karin Sander 1957-2057 sem verður opnuð á Listahátíð í Reykjavík 30. maí kl. 14.00 í Hafnarhúsi.

Sýningin opnar um leið og Listahátíð í Reykjavík og verður boðið upp á spennandi opnunardagskrá í Hafnarhúsi og sérstakan opnunargjörning eftir Karin Sander.

Karin Sander er heimsþekkt þýsk listakona sem hefur ræktað tengsl við Ísland allt frá fyrstu heimsókn fyrir þrjátíu árum. Mörg verka hennar eru innblásin af náttúru landsins, menningu og samfélagi.

Listasafn Reykjavíkur setur upp yfirgripsmikla sýningu með glænýjum og eldri verkum í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík. Verk Karinar byggja gjarnan á þátttöku gesta og hugmyndum um samspili efnis, tíma og staðar. Á sýningunni Karin Sander 1957-2057 er fjallað um staðarvitund í landfræðilegum, líkamlegum og huglægum skilningi. Sýningargestum er boðið að láta skanna sig og prenta af af sér smástyttu; auðir strigar á víðavangi safna áferð við mismunandi aðstæður; og neonskilti staðsetur áhorfendur í Hafnarhúsi samkvæmt mælingum GoogleEarth.

Karin Sander (1957) er þekkt fyrir hugmyndafræðilega nálgun sína á efni og rými þar sem hún vinnur með hversdagslega hluti, arkitektúr og stafræna miðla. Verk hennar hafa verið sýnd á virtum alþjóðlegum vettvangi, þar á meðal Arkitektúrtvíæringnum í Feneyjum 2023, Kunstmuseum Winterthur og SFMoma. Árið 2018 vann Karin samkeppni um útilistaverk í Vogabyggð í Reykjavík.