Fara beint í efni

Opnun | Hrafn­kell Sigurðsson X

til

Opnun | Hrafnkell Sigurðsson X

Opnun | Hrafnkell Sigurðsson X

Kjarvalsstaðir

til

Verið velkomin á opnun sýningarinnar í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum, laugardag 31. október kl. 15.00

Hrafnkell er tíundi listamaðurinn sem valinn er til þátttöku í sýningaröð Listasafns Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum, þar sem farið er yfir feril lykilpersóna í íslensku listalífi.

Hvert og eitt þeirra er valið með tilliti til einstaks framlags þeirra og sérhæfingar á sínu sviði, bæði hvað viðvíkur miðlum, aðferðum og viðfangsefnum. Slík stöðutaka á sér stað í framsetningu lykilverka frá ólíkum tímum í Vestursal Kjarvalsstaða og útgáfu sýningarskrár þar sem fjallað um ferilinn í samhengi listasögunnar og samtímans.

Hrafnkell er þekktur fyrir stílhrein og ögrandi ljósmyndaverk þar sem hann rannsakar hugmyndir um okkar fegurð og spilar með skynjun okkar í mótsagnarkenndri framsetningu. Titill sýningarinnar vísar í skurðpunkt á ferli listamannsins. X markar staðsetningu, vegamót og hið óþekkta.

Sýningarstjóri
Björk Hrafnsdóttir