Opnun | HEIMA - mynd­list­ar­sýning

11. apríl 2025, 16:00 til 18:00

Opnun | HEIMA - myndlistarsýning

Opnun | HEIMA - myndlistarsýning

Hafnarhús

11. apríl 2025, 16:00 til 18:00

Á sýningunni í Hafnarhúsi á Barnamenningarhátíð gefst gestum kostur á að sjá afrakstur skapandi vinnu barnanna á Myndlistarnámskeiðinu Heima sem er samstarfsverkefni Listasafns Reykjavíkur, Barnaheilla og Getu hjálparsamtaka.

Á þessu sex vikna námskeiði hafa börn sem öll eiga það sameiginlegt að hafa fengið alþjóðlega vernd á Íslandi fengið að kynnast safneign og húsakosti Listasafns Reykjavíkur og unnið að eigin listsköpun undir handleiðslu reyndra listamanna.