Opnun | Guðrún Kristjáns­dóttir: Leiðir

til

Opnun | Guðrún Kristjánsdóttir: Leiðir

Opnun | Guðrún Kristjánsdóttir: Leiðir

Kjarvalsstaðir

til

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Guðrún Kristjánsdóttir: Leiðir, laugardag 21. febrúar kl. 15.00 á Kjarvalsstöðum.

Sýning Guðrúnar Kristjánsdóttur í Vestursal Kjarvalsstaða færir víðáttur náttúrunnar nær okkur.

Guðrún hefur skapað sér sérstöðu í íslenskri myndlist með verkum sem skoða samband náttúru og manns, mótað af veðri og birtu á Íslandi. Hún nálgast náttúruna sem lifandi afl, þar sem kyrrð og kraftur mætast og óvænt fegurð birtist í hógværum augnablikum.

Guðrún Kristjánsdóttir er fædd árið 1950 og nam myndlist við École des Beaux-Arts í Aix-en-Provence í Frakklandi. Hún hélt sína fyrstu einkasýningu í Kjarvalsstöðum árið 1986 og hefur síðan sýnt víða, bæði á Íslandi og erlendis, meðal annars í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu.

Sýningastjóri er Sunna Ástþórsdóttir

Daníel Bjarnason tónskáld opnar sýninguna.