Fara beint í efni

OPNUN | D54 Hugo Llanes: Bonita

til

OPNUN | D54 Hugo Llanes: Bonita

OPNUN | D54 Hugo Llanes: Bonita

Hafnarhús

til

Velkomin á opnun í D-sal Hafnarhúss, fimmtudagskvöldið 12. mars kl. 20.00. Opnunin hefst á gjörningi eftir Hugo Llanes.

Á þessari sýningu fjallar Hugo um það margslungna ferli að aðlagast nýrri menningu sem innflytjandi. Hann sækir innblástur í bæði íslenska og mexíkóska menningu –tungumál, matarhefðir, listasögu og tónlist – til að kanna hvernig þessar hefðir blandast, hvaða hliðstæður koma í ljós og hvað það þýðir að tilheyra.

Hugo er fæddur í Mexikó en býr og starfar í Reykjavík. Hann er með meistaragráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands og BA gráðu í sjónlistum frá Universidad Veracruzana í Mexíkó. Hugo hefur sýnt víða og verið virkur þáttakandi í frumkvæðum sem miða að inngildingu minnihlutahópa í íslenska myndlistarsenu, svo sem verkefnið Komd’inn, félagasamtökunum Artists in Iceland Action Visa Group, og Get Together (GETA).

Sýningaröðin í D-sal hóf göngu sína árið 2007. Hér er listamönnum sem hafa mótandi áhrif á íslenska myndlistarsenu boðið að halda sína fyrstu einkasýningu í opinberu safni.

Sýningarstjóri: Björk Hrafnsdóttir