Opin samklippismiðja – innblásin af verkum Errós
, til

Opin samklippismiðja – innblásin af verkum Errós
Hafnarhús
, til
Samklippismiðja innblásin af verkum Errós stendur opin í Hafnarhúsi til 29. maí.
Með því að safna, klippa, líma og síðan mála blandar Erró frjálslega saman sjónrænu efni og tilvísunum sem umbreytist í kraftmikil, sláandi og hlífðarlaus listaverk. Með því ljær hann nýja merkingu þeim aragrúa mynda sem nálgast má í mannkynssögunni, fréttum, alþjóðlegum miðlum og hversdagslífi nútímamannsins.
Í þessari opnu klippismiðju gefst þátttakendum tækifæri til að vinna með sömu aðferðir og skapa sín eigin verk úr fundnu myndefni, prófa samsetningar og leyfa hugmyndum að taka á sig mynd í frjálsu og skapandi umhverfi. Öll velkomin.
Allt efni verður á staðnum, en þátttakendur eru einnig hvattir til að taka með sér eigið myndefni.
Opið alla daga 10.00 - 17.00
Opið fimmtudaga 10.00 - 22.00
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa.