Örleiðsögn um sýningar | Hafnarhús
, til

Örleiðsögn um sýningar | Hafnarhús
Hafnarhús
, til
Daglegar stuttar leiðsagnir bjóða upp á ferska og lifandi nálgun að sýningum Listasafns Reykjavíkur. Starfsfólk safnsins leiðir gesti um valin verk og opnar nýjar leiðir inn í listina á skýran og aðgengilegan hátt.
Í sumar eru tvær áhugaverðar sýningar í Hafnarhúsi; Karin Sander: 1957–2057 og Erró: Remix, ásamt úrvali af Víðáttum. Í leiðsögninni fá gestir tækifæri til að staldra við, skoða nánar og dýpka skilning sinn á lykilverkum sýninganna — stutt, skýrt og hnitmiðað.