Myndlistarnámskeið á Kjarvalsstöðum fyrir 10–12 ára
til

Myndlistarnámskeið á Kjarvalsstöðum fyrir 10–12 ára
Kjarvalsstaðir
til
Boðið er upp á fjögurra daga myndlistarnámskeið á Kjarvalsstöðum fyrir börn á aldrinum 10–12 ára. Á námskeiðinu fá þátttakendur tækifæri til að kynnast fjölbreyttum efnivið og aðferðum í skapandi starfi í fallegu umhverfi safnsins.
Áhersla er lögð á tvívíða myndlist, þar sem unnið verður meðal annars með teikningu, grafík og málun. Börnin fá að skapa inni í sýningarsölum safnsins og sækja innblástur í listaverkin sem þar eru til sýnis, undir leiðsögn listamanns.
Í góðu veðri verður hluti námskeiðsins haldinn utandyra þar sem Klambratún og svæðið í kringum safnið verða nýtt til leikja og skapandi verkefna. Unnið verður í litlum hópum svo hver þátttakandi fái svigrúm til að þróa eigin hugmyndir og vinna frjálst að sinni listsköpun.
Kennsla fer fram frá 9:00-12:00. Tekið er á móti nemendum frá 8:30.
Kennari á námskeiðinu er Hlökk Þrastardóttir.
Tvö námskeið eru í boði:
22.júní -25.júní. Kl 9:00-12:00.
29.júní -2.júlí. Kl 9:00-12:00.
Skráning fer fram á Abler