Menningarnótt 2026 á Listasafni Reykjavíkur
til

Menningarnótt 2026 á Listasafni Reykjavíkur
Hafnarhús
til
Verið velkomin í Listasafn Reykjavíkur á MENNINGARNÓTT laugardaginn 22. ágúst. Frítt á allar sýningar safnsins og fjöldi spennandi viðburða í boði í Hafnarhúsi og á Kjarvalsstöðum.
DAGSKRÁ:
HAFNARHÚS – opið frá 10.00 til 22.00
Tryggvagata 17, 101 Reykjavík
Yfirstandandi sýningar í Hafnarhúsi:
Erró: Remix – ásamt úrvali af Víðáttum
Karin Sander: 1957 – 2057
10.00 – 22.00 | Listaverkabingó fyrir börn
Taktu þátt í listaverkabingói í Hafnarhúsinu á Menningarnótt og skoðaðu sýningarnar á safninu á nýjan og bráðskemmtilegan hátt.
10.00 – 22.00 | Fólk á steinstöplum
Taktu þátt í verki Karinar Sander, Fólk á steinstöplum, í Hafnarhúsinu. Gestir stíga á steinsteypta hellusteina og verða um leið lifandi höggmyndir í sameiginlegum gjörningi.
13.00 – 20.00 | Þrívíddarskönnun gesta
Gestum safnsins býðst að láta skanna sig í þrívídd og enda mögulega sem skúlptúr á sýningu Karinar Sander: 1957-2057 í Hafnarhúsi.
13:00 – 22:00 | Hafnar.haus yfirtaka Hafnar.haus býður upp á skapandi dagskrá tónlistar, ljóða og gjörninga í Fjölnotarými Hafnarhússins.
13:00 – 22:00 | Erró klippismiðja
Búðu til þitt eigið samklippsverk í klippismiðju Errós.
18:00 | Leiðsögn um Karin Sander: 1957 – 2057
Sunna Ástþórsdóttir leiðir gesti um sýningu Karinar Sander 1957-2057.
20:00 | Leiðsögn um sýninguna Erró: Remix – ásamt úrvali af Víðáttum
Björk Hrafnsdóttir leiðir gesti um sýninguna.
KJARVALSSTAÐIR – opið frá kl. 10.00 til 21.00
Flókagata 24, 105 Reykjavík
Yfirstandandi sýningar á Kjarvalsstöðum:
Kjarval og 20. öldin: Þegar nútíminn lagði að
Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd
10.00 – 21.00 | Ratleikur og þrautir fyrir börn
Á Kjarvalsstöðum verða í boði ratleikur og þrautir fyrir börn í tengslum við yfirstandandi sýningar.
12:00-15:00 | Menningarmótið í bekkpressu
Á Menningamótinu í bekkpressu koma saman ungir sem aldnir og keppa um Menningabikarinn í bekkpressu. Hoppukastali á svæðinu fyrir yngstu áhorfendurnar og pylsur í boði fyrir gesti og gangandi.
14:00 – 16:00 | Reykjavík barnanna – Tímaflakk um höfuðborgina okkar.
Fjölskylduleiðsögn og listasmiðja. Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir höfundar bókarinnar „Reykjavík barnanna“ leiða fjölskyldur um sýninguna Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd og bjóða upp á skapandi listasmiðju fyrir alla fjölskylduna.
15:00 | Leiðsögn sýningastjóra um Kjarval
Edda Halldórsdóttir sýningastjóri leiðir fólk um sýninguna Kjarval og 20.öldin: Þegar nútíminn lagði að.
20:00 | Leiðsögn Egils Helgasonar og Péturs H. Ármannssonar um Smáborg, Háborg – Reykjavík í mynd
Egill Helgason, fjölmiðlamaður og menningarrýnir ásamt Pétri Ármannssyni, arkitekt og fræðimanni, leiða fólk um sýninguna Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd á Kjarvalsstöðum.
ÁSMUNDARSAFN – opið frá kl. 13.00 til 17.00
Sigtún, 105 Reykjavík
Yfirstandandi sýningar á Ásmundarsafni:
Ásmundur Sveinsson: Undraland
Undraland: Eftirstöðvar
Undraland: Opin vinnustofa