Kjarvalsstaðir
til
Sama dag fögnum við útgáfu sem fylgir sýningunni og fjallar um listumhverfi þessa tíma. Hún inniheldur greinar eftir Becky Forsythe, sýningarstjóra og Heiðu Björk Árnadóttur, listfræðing, viðtöl við listakonur, myndir af listaverkum og heimildir sem bregða ljósi á tengslanetin og samböndin sem nærðu tímabilið. Með útgáfunni er ætlunin að varðveita og heiðra framlag þessara brautryðjenda og sýna fram á hvernig verk þeirra halda áfram að hljóma og veita innblástur.
Á sýningunni er leitast við að skoða flókið tengslanet, sterkan vef og djarft frumkvæði kvenna sem einkenndi þennan tíma listrænnar nýsköpunar. Á áttunda áratugnum lagði önnur bylgja femínisma grunninn að kvenfrelsisbaráttu um allan hinn vestræna heim sem leiddi af sér aukinn sýnileika kvenna og ýmsar breytingar innan stofnana. Með því að byggja á ávinningi áttunda áratugarins, sem oft hefur verið kallaður „kvennaáratugurinn,“ færði níundi áratugurinn konum frekari réttindi þar sem ólgandi sköpunarkraftur fékk notið sín.
Málþingið fer fram laugardaginn 8. mars kl. 12–14 á Kjarvalsstöðum. Skipuleggjandi og fundarstjóri er dr. Æsa Sigurjónsdóttir en erindi flytja, auk Becky Forsythe, Heiða Björg Árnadóttir, Gerla (Guðrún Erla Geirsdóttir), Harpa Björnsdóttir og Brynhildur Þorgeirsdóttir.
Árið 2021 fékk Listasafn Reykjavíkur Öndvegisstyrk Safnaráðs til að stofna þrjár rannsóknarstöður í samstarfi við Listfræði við Háskóla Íslands. Þær skyldu helgaðar rannsóknum á framlagi kvenna til íslenskrar listasögu. Fyrsta sýningin var í höndum Sigrúnar Ingu Hrólfsdóttur sem rannsakaði feril Hildar Hákonardóttur (2023). Sú síðari heiðraði verk Borghildar Óskarsdóttur undir stjórn Aðalheiðar Lilju Guðmundsdóttur (2024). Ólga: Frumkvæði kvenna í íslenskri myndlist á 9. áratugnum er þriðja og síðasta sýningin í þessari röð. Hún byggir á rannsóknum Becky Forsythe, sýningarstjóra.
Málþingið fer fram á íslensku. Aðgöngumiði á safnið gildir til þátttöku. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.
Sama dag kl. 15.00 verður opnuð sýning á nýjum aðföngum Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi. Undanfarin ár hefur Listasafn Reykjavíkur haft þá stefnu að rétta kynjahlutfall listamanna í safneign sinni með því að tileinka miklum meirihluta innkaupafjár kaupum á listaverkum eftir konur. Á sýningunni eru eingöngu verk eftir konur sem nýlega hafa bæst í safneign Listasafns Reykjavíkur.
Dagskrá:
Ólöf K. Sigurðardóttir, safnstjóri: Inngangsorð
Becky Forsythe: Frumkvæði kvenna í íslenskri myndlist á 9. áratugnum
Heiða Björk Árnadóttir: Kanón myndlistar og söfnun íslenskra listasafna á myndlist kvenna 1970-1995
Guðrún Erla Geirsdóttir : Kvennasamstaða: Listahátíð kvenna 1985
13:15 HLÉ
Harpa Björnsdóttir: Að skapa sér vettvang
Brynhildur Þorgeirsdóttir: Að koma sér upp vinnustofu.
Pallborð með þátttakendum: Umsjón Æsa Sigurjónsdóttir
15:00 Opnun sýningar í Hafnarhúsi
Kynningarmynd: Gerla, Draumur skúringarkonunnar I, 1978.