Fara beint í efni

Málþing | Ferill í fókus: Yfir­lits­sýn­ingar lista­fólks

til

Málþing | Ferill í fókus: Yfirlitssýningar listafólks

Málþing | Ferill í fókus: Yfirlitssýningar listafólks

Hafnarhús

til

Yfirlitssýningar hafa gegnt því mikilvæga hlutverki að veita innsýn inn í feril listamanna á ákveðnum tímapunkti. Á ráðstefnunni verður fjallað um yfirlitssýninguna sem sýningarform, áhrif þeirra og þær ólíku leiðir sem notaðar eru til að gera grein fyrir ævistarfi listamanna. Ráðstefnan er hluti af faglegri ráðstefnuröð Listasafns Reykjavíkur og er nú haldin í tilefni af tíundu sýningunni í röð yfirlitssýninga safnsins, sýning á verkum Hrafnkels Sigurðssonar X á Kjarvalsstöðum.

Skráning er nauðsynleg, en aðgangur að málþinginu er gjaldfrjáls.

Föstudagur 20. nóvember, kl. 13:00-17:30
Fjölnotarými Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi

13:00–13:05
Sigurður Trausti Traustason
Kynning á viðfangsefni málþingsins.

13:05–13:45
Jessica Baxter
(Ekki) mín stóra yfirlitssýning: Sýningarstjórn frásagna um áföll, mótstöðu og bata í sýningunni Tracey Emin: A Second Life í Tate Modern
Í erindinu verður fjallað um ólíkar leiðir til að sýningarstýra jafn fjölbreyttu og marglaga listsköpunarferli og því sem einkennir verk Tracey Emin, jafnframt því sem kannaðir verða möguleikar og takmarkanir yfirlitssýningarinnar sem sýningarforms á stóru þjóðarsafni. Hvernig eiga sýningarstjórar að nálgast verk sem af einlægni takast á við kynbundið ofbeldi og feðraveldislegar aðstæður sem hafa mótað lífsreynslu listamanns? Er hægt, eða ætti, safn að setja fram margar samhliða frásagnir og tímalínur í gegnum feril listamanns? Og hvernig getur sýningarfrásögn náð jafnt til þeirra sem þekkja vel til verka listamannsins og þeirra sem eru að kynnast þeim í fyrsta sinn? Í erindinu verður fjallað um rannsóknarvinnu og ákvarðanatöku við undirbúning sýningarinnar Tracey Emin: A Second Life, samstarf við starfandi listamann og aðlögun sýningarinnar að nýju norrænu samhengi í samstarfi við Louisiana Museum of Modern Art.

Jess Baxter er aðstoðarsýningarstjóri alþjóðlegrar myndlistar við Tate Modern. Hún vann meðal annars að sýningunum Tracey Emin: A Second Life (2026), Leigh Bowery! (2025) og A World in Common: Contemporary African Photography (2023), auk fjölmargra safnkynninga og ljósmyndainnkaupa fyrir safnið. Hún var valin einn af Emerging Curators hjá British Art Network á árunum 2023-2024.

13:45–14:15
Markús Þór Andrésson
Leiðangur að X
Tíu yfirlitssýningar á miðjum starfsferli hafa verið haldnar að hausti á Kjarvalsstöðum frá árinu 2017. Í erindinu verður litið yfir þessa sýningaröð og þær fjölbreyttu leiðir skoðaðar sem farnar hafa verið út frá sömu grunnhugmyndinni um yfirlit. Kastljósinu er varpað á hlut sýningarstjóra, listasafns og fagumhverfisins í víðu tilliti.

Markús Þór Andrésson (f. 1975) er safnstjóri Listasafns Reykjavíkur og var skipaður í embættið árið 2025 eftir átta ár sem yfirsýningarstjóri safnsins. Hann nam við CCS Bard College og hefur starfað sem rithöfundur, sýningarstjóri og kvikmyndagerðarmaður. Í störfum sínum hefur hann einkum beint sjónum að íslenskum listamönnum og listasögu. Hann stýrir starfsemi safnsins á þremur starfsstöðvum þess og ber jafnframt ábyrgð á verkefnum tengdum list í almenningsrými í Reykjavík.

14:15–14:35
Kaffihlé

14:35–15:05
Brynja Sveinsdóttir
Tilbrigði við þekkt stef.
Nálgun á endurlit í gegnum yfirlitssýningar á verkum Gerðar Helgadóttur (1928-1975), Barböru Árnason (1911-1975), Harðar Ágústssonar (1922-2005) og Valgerðar Briem (1914-2002) í Gerðarsafni 2024-2026.

Brynja Sveinsdóttir hefur starfað sem forstöðumaður Gerðarsafns frá árinu 2021 og starfaði sem verkefnastjóri sýninga og safneignar á safninu frá árinu 2015. Hún nam listfræði, heimspeki og hagnýta menningarmiðlun við Háskóla Íslands og sýningarstjórn við Stokkhólmsháskóla.

15:05–15:35
Dagný Heiðdal
Yfirlitssýningar Listasafns Íslands.
Yfirlitssýningar yfir feril einstakra listamanna, bæði lifandi og látinna, hafa skipað mikilvægan sess í sýningarsögu Listasafns Íslands allt frá árinu 1955. Í erindinu verður sjónum einkum beint að yfirlitssýningum safnsins síðastliðinn aldarfjórðung, undirbúningi þeirra og umfangi.

Dagný Heiðdal er listfræðingur og skráningarstjóri Listasafns Íslands og hefur starfað við safnið frá árinu 2002. Hún er menntaður sögukennari frá Háskóla Íslands og lauk M.A prófi í listfræði frá Háskólanum í Lundi.

15:35–16:05
Harpa Björnsdóttir
Á kantinum: Yfirlitssýningar íslenskra naívista.
Harpa Björnsdóttir hefur auk eigin myndlistarferils sinnt fjölbreyttum verkefnum á íslenskum myndlistar- og menningarvettvangi, þar með talið sýningarstjórn, verkefnastjórn og rannsóknum og kynningu á list einfara og jaðarlistamanna. Hún hefur í gegnum árin sett upp fjölda sýninga á verkum naívista, m.a. í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, Safnasafninu, Listasafni Íslands og Listasafni Reykjavíkur.

16:05–16:35
Sigrún Inga Hrólfsdóttir
Rannsóknarstaða um hlut kvenna í íslenskri myndlist Fjallað verður um þriggja ára rannsóknarstöðu um hlut kvenna í íslenskri myndlist sem að Listasafn Reykjavíkur stofnaði til í samstarfi við listfræðideild Háskóla Íslands. Erindið beinir sérstaklega sjónum að fyrstu rannsókninni en þá rannsakaði Sigrún Inga Hrólfsdóttir feril Hildar Hákonardóttur.

Stutt hlé

16:40–17:30
Pallborðsumræður: Hlutverk yfirlitssýninga í samtímanum
Þátttakendur
• Jessica Baxter
• Markús Þór Andrésson
• Brynja Sveinsdóttir
• Dagný Heiðdal
• Harpa Björnsdóttir
• Sigrún Inga Hrólfsdóttir
Pallborðsumræður um hlutverk yfirlitssýninga í samtímanum, rannsóknargildi þeirra, áhrif á feril listamanna og stöðu þeirra í starfsemi listasafna.

17:30 Lokaorð og móttaka
Samantekt dagsins og léttar veitingar að málþingi loknu.