Fara beint í efni

Lokahóf | Kristín Helga Ríkharðs­dóttir: Silkimjúk

til

Lokahóf | Kristín Helga Ríkharðsdóttir: Silkimjúk

Lokahóf | Kristín Helga Ríkharðsdóttir: Silkimjúk

Hafnarhús

til

Verið velkomin á lokahóf í tilefni af síðustu dögum D53 sýningar Kristínar Helgu Ríkharðsdóttur: Silkimjúk í Hafnarhúsi fimmtudaginn 5. mars kl. 20.00.

Í vídeóinnsetningunni Silkimjúk fylgjum við konu með óslökkvandi þrá eftir fullkomlega sléttum fótleggjum. Þrá sem breytist í þráhyggju og óútskýrðan ótta við stutt, dökk hár.

Kristín Helga Ríkharðsdóttir er 53. listamaðurinn til að sýna í D-sal Hafnarhúss þar sem listamönnum sem hafa mótandi áhrif á íslenska myndlistarsenu er boðið að halda sína fyrstu einkasýningu í opinberu safni.

Plötusnúðar kvöldsins, Volruptus og IN3DjEE, halda uppi stemningunni og barinn verður opinn.

Síðasti dagur sýningarinnar er 8. mars.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa.