Lokahóf | D54 Hugo Llanes: Bonita
til

Lokahóf | D54 Hugo Llanes: Bonita
Hafnarhús
til
Verið velkomin í lokahóf sýningarinnar D54 Hugo Llanes: Bonita í Hafnarhúsi fimmtudaginn 30.apríl kl. 19.00.
Tónlistargjörningar frá Spider Network og Gubba Hori ásamt Bonitu.
Pop-up bar frá Hafnar.haus opinn frá kl. 18.00.
Á þessari sýningu fjallar Hugo um það margslungna ferli að aðlagast nýrri menningu sem innflytjandi. Hann nýtir sér undirstöður íslenskrar og mexíkóskrar menningar – tungumál, matarhefðir, listasögu og tónlist – til að kanna hvernig þessar hefðir blandast, hvaða hliðstæður koma í ljós og hvað það þýðir að tilheyra.
Síðasti dagur sýningarinnar er 3. maí.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa.