
Hafnarhús
, til
Markús Þór Andrésson verður með leiðsögn um sýninguna Steina: Tímaflakk.
Sýningin er samstarf Listasafns Íslands og Listasafns Reykjavíkur og er í báðum söfnunum samtímis. Steina er einn helsti frumkvöðull vídeólistar og nýmiðlunar í heiminum og brautryðjandi og áhrifamanneskja á sviði samtímalistar hérlendis. Með verkum sínum hefur hún á einstakan hátt tengt saman vídeólist, tónlist og tækni á skapandi og frjóan hátt. Sýningin er fyrsta stóra yfirlitssýningin á verkum Steinu hér á landi. Hún er upphaflega skipulögð í Bandaríkjunum undir heitinu Playback og sett þar upp á tveimur söfnum árið 2024 en hér á landi verður hún viðameiri að umfangi og inntaki. Rakinn verður listrænn ferill Steinu frá upphafi til samtímans og birtir sýningin í heild því afar áhugaverða mynd af þróun tækni og listar á síðustu áratugum.
Athugið að leiðsögnin fer fram á Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi.
Gestir eru beðnir að skrá sig á viðburðinn.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.