Leiðsögn sýningarstjóra | Lekir líkamar, sameiginlegir heimar
til

Leiðsögn sýningarstjóra | Lekir líkamar, sameiginlegir heimar
Hafnarhús
til
Aldís Snorradóttir sýningastjóri verður með leiðsögn um sýninguna: Lekir líkamar, sameiginlegir heimar: Verk úr safni Bunkier Sztuki í Kraká, Hafnarhúsi fimmtudaginn 5. nóvember kl. 20.00.
Á sýningunni eru eingöngu verk úr safneign Bunkier Sztuki, sem geymir eitt öflugasta safn pólskrar samtímalistar í Evrópu. Sýnd verða ljósmyndaverk, málverk, skúlptúrar og innsetningar eftir þrjátíu listamenn frá Póllandi.
Sýningin dregur fram fjölbreytileika og kraft pólskrar samtímalistar og setur hana í alþjóðlegt samhengi. Verkin hafa ferðast frá Kraká til Reykjavíkur, þar sem þau eru sýnd í samfélagi sem að hluta hefur mótast af pólskri nærveru.
Með sýningunni gefst einstakt tækifæri til að kynnast fremstu samtímalistamönnum Póllands og styrkja um leið menningarleg tengsl Íslands og Póllands.
Leiðsögnin fer fram á íslensku.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa og yngri en 18 ára.