Fara beint í efni

Leið­sögn sýning­ar­stjóra | Guðrún Kristjáns­dóttir: Leiðir

til

Leiðsögn sýningarstjóra | Guðrún Kristjánsdóttir: Leiðir

Leiðsögn sýningarstjóra | Guðrún Kristjánsdóttir: Leiðir

Kjarvalsstaðir

til

Sýningarstjórinn Sunna Ástþórsdóttir veitir leiðsögn um sýninguna Guðrún Kristjánsdóttir: Leiðir, á Kjarvalsstöðum þann 3. maí kl. 14.00.

Guðrún hefur skapað sér sérstöðu í íslenskri myndlist með verkum sem skoða samband náttúru og manns, mótað af veðri og birtu á Íslandi. Hún nálgast náttúruna sem lifandi afl, þar sem kyrrð og kraftur mætast og óvænt fegurð birtist í hógværum augnablikum.

Sýningin spannar verk frá áratugalöngum ferli Guðrúnar og gefur heildstæða mynd af óþrjótandi áhuga listakonunnar á að fanga upplifun okkar af náttúrunni - frá agnarsmáum vatnsdropum til þokukenndra fjallstinda, bláma fjarskans og ljósi sem breytist á hverri stundu. Sýningin tengir saman náttúru, skynjun og tíma og kallar fram upplifun sem er bæði sjónræn og tilfinningaleg – andartak til að staldra við og finna snertingu við umhverfið.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.