Leiðsögn safnstjóra | Karin Sander: 1957-2057
til

Leiðsögn safnstjóra | Karin Sander: 1957-2057
Hafnarhús
til
Markús Þór Andrésson safnstjóri Listasafns Reykjavíkur og annar sýningarstjóra Karin Sander: 1957-2057 verður með leiðsögn um sýninguna fimmtudagskvöldið 30. júlí kl. 20.00 í Hafnarhúsi.Í leiðsögninni mun Markús veita innsýn í verk Karinar Sander og fjalla um hugmyndirnar á bak við sýninguna.
Á þessari yfirgripsmiklu sýningu eru verk sem spanna allan feril listakonunnar og gefa innsýn í verk alþjóðlegs hugmyndalistamanns sem vinnur með umhverfi okkar og tilvist á óvæntan og áhrifamikinn hátt.