Leiðsögn safnstjóra | Erró: Remix – ásamt úrvali af Víðáttum
til

Leiðsögn safnstjóra | Erró: Remix – ásamt úrvali af Víðáttum
Hafnarhús
til
Markús Þór Andrésson safnstjóri leiðir gesti um sýninguna Erró: Remix – ásamt úrvali af Víðáttum í Hafnarhúsi, fimmtudag 26. mars kl. 18.00.
Erró er á meðal þeirra íslensku listamanna sem náð hafa fótfestu í heimi alþjóðlegrar myndlistar. Listasafn Reykjavíkur varðveitir heilstætt safn verka eftir listamanninn og er Hafnarhús vettvangur reglulegra sýninga á verkum hans. Þessi yfirlitssýning endurspeglar litríkan ferli listamannsins en á löngum ferli hefur hann fengist við ýmsa miðla myndlistarinnar. Þar má finna allt frá gjörningum, vídeólist, grafík, fjölfeldi og klippimyndum, til stórra verka í almannarými og málverka á öllum skala, sem hafa unnið honum verðugan sess í evrópskri listasögu.
Glæsileg lánsverk úr flokki svokallaðra víðáttuverka Errós tóku nýlega yfir heilan sal á sýningunni og skapa kraftmikla heildarupplifun fyrir gesti. Víðáttuverk Errós (e. scapes) eru eins konar landslagsmyndir sem listamaðurinn byggir upp úr aragrúa mynda af sama viðfangsefni. Í þeim fléttast saman ólík sjónarhorn og myndbrot í þéttan og litríkan myndheim.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.