Fara beint í efni

Leið­sögn með Karin Sander | Karin Sander 1957-2057

til

Leiðsögn með Karin Sander | Karin Sander 1957-2057

Leiðsögn með Karin Sander | Karin Sander 1957-2057

Hafnarhús

til

Karin Sander leiðir gesti um sýningu sína Karin Sander 1957-2057 í Hafnarhúsi 31. maí kl. 13.00.

Karin Sander er heimsþekkt þýsk listakona sem hefur ræktað tengsl við Ísland allt frá fyrstu heimsókn fyrir þrjátíu árum. Mörg verka hennar eru innblásin af náttúru landsins, menningu og samfélagi.

Listasafn Reykjavíkur setur upp yfirgripsmikla sýningu með glænýjum og eldri verkum í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík. Verk Karinar byggja gjarnan á þátttöku gesta og hugmyndum um samspili efnis, tíma og staðar. Á sýningunni Karin Sander 1957-2057 er fjallað um staðarvitund í landfræðilegum, líkamlegum og huglægum skilningi. Sýningargestum er boðið að láta skanna sig og prenta af af sér smástyttu; auðir strigar á víðavangi safna áferð við mismunandi aðstæður; og neonskilti staðsetur áhorfendur í Hafnarhúsi samkvæmt mælingum GoogleEarth.

Karin Sander (1957) er þekkt fyrir hugmyndafræðilega nálgun sína á efni og rými þar sem hún vinnur með hversdagslega hluti, arkitektúr og stafræna miðla. Verk hennar hafa verið sýnd á virtum alþjóðlegum vettvangi, þar á meðal Arkitektúrtvíæringnum í Feneyjum 2023, Kunstmuseum Winterthur og SFMoma. Árið 2018 vann Karin samkeppni um útilistaverk í Vogabyggð í Reykjavík.

Leiðsögnin fer fram á ensku.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.