Leiðsögn listamanns | Katrín Elvarsdóttir: Blómstrandi framtíð
til

Leiðsögn listamanns | Katrín Elvarsdóttir: Blómstrandi framtíð
Hafnarhús
til
Katrín Elvarsdóttir leiðir gesti um sýninguna Blómstrandi framtíð í Hafnarhúsi á sumardaginn fyrsta, fimmtudag 23. apríl kl. 20.00. Leiðsögnin fer fram á ensku.
Á sýningunni Blómstrandi framtíð beinir Katrín sjónum sínum að plöntum sem hafa ferðast milli heimkynna. Í verkunum mætast grípandi fegurð og hugleiðingar um uppruna. Hún veltir fyrir sér hvað það þýðir að tilheyra, að festa rætur – vera aðfluttur og samt hluti af heild.
Fjórar seríur sýningarinnar fjalla um inngrip mannsins í náttúruna: Plöntur eru fluttar á milli staða sem gjafir, sem eign, fyrir forvitnissakir eða í nafni rannsókna og framþróunar. Í forgrunni eru fjórar tegundir; kirsuberjatré, bananatré, fenjagreni og kínversk plastblóm, sem hver um sig býr yfir langri og áhugaverðri sögu sem tengir saman ólíkar heimsálfur.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.