Fara beint í efni

Leið­sögn lista­manns | Hrafn­kell Sigurðsson

til

Leiðsögn listamanns | Hrafnkell Sigurðsson

Leiðsögn listamanns | Hrafnkell Sigurðsson

Kjarvalsstaðir

til

Hrafnkell Sigurðsson leiðir gesti um verk sín á sýningunni X, Kjarvalsstöðum sunnudaginn 8. nóvember kl. 14.00.

Hrafnkell er tíundi listamaðurinn sem valinn er til þátttöku í sýningaröð Listasafns Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum, þar sem farið er yfir feril lykilpersóna í íslensku listalífi.

Sýningin veitir yfirlit yfir rúmlega þrjátíu ára feril listamannsins ásamt því að sýna ný og áður óséð verk.

Verk Hrafnkels draga gjarnan fram andstæður eins og á milli skipulags og óreiðu, menningar og náttúru. Listamaðurinn beinir sjónum að því hvernig mannleg kerfi takast á við náttúrulegt niðurbrot og dregur fram fegurðina í því sem við lítum oft framhjá, til dæmis rusli, sjúskuðu yfirborði og öðru í hverfulleika daglegs lífs.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa og fyrir yngri en 18 ára.