Fara beint í efni

Leið­sögn lista­manns | Guðrún Kristjáns­dóttir: Leiðir

til

Leiðsögn listamanns | Guðrún Kristjánsdóttir: Leiðir

Leiðsögn listamanns | Guðrún Kristjánsdóttir: Leiðir

Kjarvalsstaðir

til

Guðrún Kristjánsdóttir leiðir gesti um sýningu sína Leiðir á Kjarvalsstöðum sunnudaginn 1. mars kl. 14.00.

Sýningin spannar verk frá áratugalöngum ferli Guðrúnar og gefur heildstæða mynd af óþrjótandi áhuga listakonunnar á að fanga upplifun okkar af náttúrunni - frá agnarsmáum vatnsdropum til þokukenndra fjallstinda, bláma fjarskans og ljósi sem breytist á hverri stundu. Sýningin tengir saman náttúru, skynjun og tíma og kallar fram upplifun sem er bæði sjónræn og tilfinningaleg – andartak til að staldra við og finna snertingu við umhverfið.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.

Gestir eru beðnir að skrá sig á viðburðinn: https://forms.office.com/e/EgvDNjA3ir