Fara beint í efni

Leið­sögn lista­manns | D54 Hugo Llanes: Bonita

til

Leiðsögn listamanns | D54 Hugo Llanes: Bonita

Leiðsögn listamanns | D54 Hugo Llanes: Bonita

Hafnarhús

til

Hugo Llanes myndlistarmaður leiðir gesti um D54 sýninguna Bonita í D-sal í Hafnarhúsi, fimmtudaginn 26. mars kl. 20.00.

Hugo Llanes (f.1990) er 54. listamaðurinn til að sýna í D-sal. Þar er listamönnum sem hafa mótandi áhrif á íslenska myndlistarsenu boðið að halda sína fyrstu einkasýningu í opinberu safni.

Á þessari sýningu fjallar Hugo um það margslungna ferli að aðlagast nýrri menningu sem innflytjandi. Hann nýtir sér undirstöður íslenskrar og mexíkóskrar menningar – tungumál, matarhefðir, listasögu og tónlist – til að kanna hvernig þessar hefðir blandast, hvaða hliðstæður koma í ljós og hvað það þýðir að tilheyra.

Hugo er fæddur í Mexikó en býr og starfar í Reykjavík. Hann er með meistaragráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands og BA gráðu í sjónlistum frá Universidad Veracruzana í Mexíkó. Hugo hefur sýnt víða og verið virkur þáttakandi í frumkvæðum sem miða að inngildingu minnihlutahópa í íslenska myndlistarsenu, svo sem verkefnið Komd’inn, félagasamtökunum Artists in Iceland Action Visa Group, og Get Together (GETA).

Leiðsögnin fer fram á ensku.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.