Leið­sögn lista­manns | Bryn­hildur segir frá Ólgu

4. maí 2025, 14:00 til 15:00

Leiðsögn listamanns | Brynhildur segir frá Ólgu

Leiðsögn listamanns | Brynhildur segir frá Ólgu

Kjarvalsstaðir

4. maí 2025, 14:00 til 15:00

Brynhildur Þorgeirsdóttir er ein af níu listakonum sem eiga verk á samsýningunni Ólgu sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum.

Hún verður með leiðsögn um sýninguna sunnudaginn 4. maí kl. 14.00. Ólga: Frumkvæði kvenna í íslenskri myndlist á 9. áratugnum er samsýning sem fjallar um afgerandi hlutverk kvenna í mótun íslenskrar listasenu á miklum umbreytingatímum níunda áratugs liðinnar aldar.