Leiðsögn á íslensku táknmáli | Lekir líkamar, sameiginlegir heimar
til

Leiðsögn á íslensku táknmáli | Lekir líkamar, sameiginlegir heimar
Hafnarhús
til
Bryn Nóel Francis, táknmáls- og listfræðingur verður með leiðsögn á íslensku táknmáli um sýninguna Lekir líkamar, sameiginlegir heimar: Verk úr safni Bunkier Sztuki í Kraká fimmtudag 19. nóvember kl. 20.00 í Hafnarhúsi.
Sýningin kynnir verk þrjátíu pólskra samtímalistamanna úr safneign Bunkier Sztuki, sem geymir eitt öflugasta safn pólskrar samtímalistar í Evrópu.
Á sýningunni eru ljósmyndir, málverk, skúlptúrar og innsetningar sem fjalla um líkamann, sjálfsmynd og tilveru í síbreytilegum heimi.
Sýningin varpar ljósi á fjölbreytileika pólskrar samtímalistar og skapar vettvang fyrir samtal milli pólskrar og íslenskrar menningar. Hún býður upp á einstakt tækifæri til að kynnast verkum fremstu samtímalistamanna Póllands í Reykjavík.
Frítt er á leiðsögnina.