Leiðsögn á íslensku táknmáli | Karin Sander: 1957–2057
til

Leiðsögn á íslensku táknmáli | Karin Sander: 1957–2057
Hafnarhús
til
Bryn Nóel Francis, táknmáls- og listfræðingur verður með leiðsögn á íslensku táknmáli um sýningu Karin Sander: 1957–2057 í Hafnarhúsi, sunnudag 14. júní kl. 14.00.
Karin Sander 1957-2057 er yfirgripsmikil sýning á verkum þýsku listakonunnar Karin Sander, sem hefur ræktað tengsl við Ísland allt frá fyrstu heimsókn fyrir þrjátíu árum.
Mörg verka listakonunnar eru innblásin af náttúru landsins, menningu og samfélagi. Á sýningunni er fjallað um staðarvitund í landfræðilegum, líkamlegum og huglægum skilningi. Sýningargestum er boðið að láta skanna sig og prenta af sér smástyttu og auðir strigar á víðavangi safna áferð um mismunandi aðstæður.
Í kjölfar leiðsagnarinnar verður farið á Ilmheim Listahátíðar, sýningu eftir Fischersund, í Gróðurhúsinu á Lækjartorgi.