Kvöldgöngur | Útilistaverkin í Vesturbænum
til

Kvöldgöngur | Útilistaverkin í Vesturbænum
Háskólabíó
til
Björk Hrafnsdóttir leiðir kvöldgöngu á milli listaverka í Vesturbænum, fimmtudag 25. júní kl 20.00-21.30. Gangan hefst við Háskólabíó.
Létt ganga þar sem gengið verður á milli verka frá Háskólabíó að Ægissíðu.
Kvöldgöngur eru viðburðaröð sem Borgarbókasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur og Bókmenntaborg Reykjavík Unesco standa fyrir.
Göngurnar eru ókeypis og fara fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:00 – 21:30 yfir sumarmánuðina. Athugið að göngurnar hefjast á mismunandi stöðum.
Fylgjast má með dagskránni á heimasíðum safnanna og á Facebook síðunni Kvöldgöngur. Þátttaka er ókeypis en greiða þarf í ferjuna þegar göngurnar eru í Viðey.