Fara beint í efni

Kvöld­göngur | Strand­lengjan

til

Kvöldgöngur | Strandlengjan

Kvöldgöngur | Strandlengjan

Harpa

til

Markús Þór Andrésson, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, leiðir göngu um útilistaverk við Sæbraut, fimmtudag 16. júlí 20.00-21.30. Gangan hefst við Hörpu.

Á leiðinni eru fjölbreytt minnismerki sem og sjálfstæð listaverk eftir íslenska og alþjóðlega listamenn.

Kvöldgöngur eru viðburðaröð sem Borgarbókasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur og Bókmenntaborg Reykjavík Unesco standa fyrir.

Göngurnar eru ókeypis og fara fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:00 – 21:30 yfir sumarmánuðina. Athugið að göngurnar hefjast á mismunandi stöðum.

Fylgjast má með dagskránni á heimasíðum safnanna og á Facebook síðunni Kvöldgöngur. Þátttaka er ókeypis en greiða þarf í ferjuna þegar göngurnar eru í Viðey.