Fara beint í efni

Klipp og drykk | Erró samklippsmiðja

til

Klipp og drykk | Erró samklippsmiðja

Klipp og drykk | Erró samklippsmiðja

Hafnarhús

til

Opin samklippismiðja fyrir fullorðna – innblásin af verkum Errós. Fimmtudagskvöldið 21. maí frá 19.00 - 22.00.

Með því að safna, klippa, líma og síðan mála blandar Erró frjálslega saman sjónrænu efni og tilvísunum sem umbreytist í kraftmikil, sláandi og hlífðarlaus listaverk. Með því ljær hann nýja merkingu þeim aragrúa mynda sem nálgast má í mannkynssögunni, fréttum, alþjóðlegum miðlum og hversdagslífi nútímamannsins.

Í þessari opnu klippismiðju gefst þátttakendum tækifæri til að vinna með sömu aðferðir og skapa sín eigin verk úr fundnu myndefni, prófa samsetningar og leyfa hugmyndum að taka á sig mynd í frjálsu og skapandi umhverfi. Öll velkomin.

Allt efni verður á staðnum, en þátttakendur eru einnig hvattir til að taka með sér eigið myndefni.

Pop-up bar verður opinn á meðan á viðburðinum stendur.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa.