Joan Jonas: Reanimation
til

Joan Jonas: Reanimation
Hafnarhús
til
Listasafn Reykjavíkur sýnir vídeóverkið Reanimation (2010/2012/2013) eftir Joan Jonas.
Listasafn Reykjavíkur framlengir sýningu á vídeóverkinu Reanimation (2010/2012/2013) eftir Joan Jonas í Hafnarhúsinu 13.-14. september. Verkið er sýnt með góðfúslegu leyfi listamannsins og Gladstone Gallery.
Verkið var áður til sýnis 6.-11. september, tilefnið var þátttaka listamannsins í viðburði með Ragnari Kjartanssyni þann 11. september þar sem þau ræddu hvernig skáldverk Halldórs Laxness urðu þeim innblástur í gerð sjálfstæðra myndlistarverka. Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við Gljúfrastein.
Reanimation sækir í bók Halldórs, Kristnihaldi undir jökli (1968), þar sem hinn ungi sendiboði Umbi er sendur af biskupi Íslands undir Snæfellsjökul með segulband að vopni til að rannsaka embættisverk séra Jóns Prímusar og safnaðar hans. Ferðin verður sífellt torsóttari og Umbi áttar sig smám saman á því að mörkin á milli hins raunverulega og yfirnáttúrulega eru ekki lengur skýr.
Reanimation var fyrst flutt sem gjörningur árið 2010, í samstarfi við tónlistarmanninn Jason Moran, og árið 2012 sett upp sem innsetning á Documenta 13. Innsetningin var sýnd á Íslandi árið 2016 í Listasafni Íslands og Listasafninu á Akureyri. Í vídeóverkinu vefur Jonas saman upptökum frá Noregi, tónlist, texta, teikningum, leikmunum og hreyfimyndum úr fyrri verkum hennar. Hún stígur sjálf fram sem sögumaður, töframaður og spákona og leiðir áhorfandann inn í hringrás þar sem endurlífgun, uppvakning og afturganga verður hluti af sífelldu flæði lífsins.
Með Reanimation brýtur Jonas upp hefðbundin frásagnarform og kannar hvernig þjóðsögur og dulspeki skapa nýjar leiðir til að nálgast þekkingu, skynja veruleikann og náttúruna.
Joan Jonas (f. 1936) er bandarísk myndlistarkona og frumkvöðull í gjörninga- og vídeólist. Hún hefur haft djúpstæð áhrif á þróun samtímalistar frá sjöunda áratugnum og er þekkt fyrir verk sem blanda saman hreyfingu, hljóði, texta og mynd. Hún hefur sýnt víða um heim, m.a. á Tate Modern, MoMa og Feneyjartvíæringnum, þar sem hún var fulltrúi Bandaríkjanna árið 2015.
Reanimation er aðgengilegt í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi frá laugardeginum 13. til sunnudagsins 14. september.
© Joan Jonas/Artists Rights Society (ARS), New York, Courtesy of the artist and Gladstone.