Fara beint í efni

Hönn­un­ar­Mars | Ker / Blábreiða

til

HönnunarMars | Ker / Blábreiða

HönnunarMars | Ker / Blábreiða

Kjarvalsstaðir

til

Guðbjörg Káradóttir keramiker sýnir verkið Blábreiðu sem er vísun í landgræðslu á Íslandi. Verkið er innblásið af lúpínunni, plöntu sem flestir hafa skoðun á. Fólk ýmist elskar eða hatar lúpínuna, sumir stráfella hana jafnvel á hverju vori.

Um miðja síðustu öld hafði íslenska sauðkindin étið upp stóran hluta af gróðri á landinu. Ísland var orðið frekar gróðaursnautt og því var átaki hrint af stað til að græða upp landið. Meðal annars voru flutt inn lúpínufræ til að binda jarðveginn og til að byrja með var fræjunum sáð í reiti.

Lúpínan vex aldrei ein, hún myndar alltaf breiðu. Í verkinu Blábreiðu gerir Guðbjörg tilraun til að endurskapa hughrifin. Verkið samanstendur af handrenndum steinleirsvösum með fjólubláum glerjungi í formi sem minnir á lúpínu.

Guðbjörg Káradóttir hannar vörur undir merkinu Ker. Allar vörur Ker eru handrenndar í Reykjavík af Guðbjörgu sjálfri. Guðbjörg vinnur aðallega með postulín sem hún blandar saman við eldfjallaösku og steinleir í verkum sínum og sækir innblástur í íslenska náttúru.