Haustfrí í Hafnarhúsi | Opin samklippismiðja – innblásin af verkum Errós
til

Haustfrí í Hafnarhúsi | Opin samklippismiðja – innblásin af verkum Errós
Hafnarhús
til
Komið og klippið, límið og skapið í opinni samklippismiðju í Hafnarhúsi í haustfríinu!
Erró safnar, klippir og blandar saman myndefni úr ólíkum áttum og skapar úr því kraftmikil verk þar sem kunnuglegar myndir öðlast nýja merkingu. Í opinni klippismiðju geta þátttakendur prófað svipaðar aðferðir, leikið sér með fundið myndefni og skapað sín eigin verk í frjálsu og skapandi umhverfi. Allt efni verður á staðnum, en þátttakendur mega endilega taka með sér eigið myndefni til að klippa og umbreyta.
Gestir geta komið og farið að vild, dvalið stutt eða lengur og tekið þátt á sínum forsendum, einir, með öðrum eða í samveru ólíkra kynslóða.
Á öllum barna og fjölskylduviðburðum Listasafns Reykjavíkur er gert ráð fyrir því að börn komi ásamt fullorðnum fjölskyldumeðlimum og njóti samverunnar.
Frítt inn á söfn Listasafns Reykjavíkur fyrir fullorðna í fylgd barna allt vetrarfríið og fjölbreytt dagskrá í boði fyrir barnafjölskyldur.