Fara beint í efni

Haustfrí í Hafn­ar­húsi | Fata­blóm

til

Haustfrí í Hafnarhúsi | Fatablóm

Haustfrí í Hafnarhúsi | Fatablóm

Hafnarhús

til

Í þessari smiðju endurnýtum við gömul föt og ýmis efni og búum til blóm úr þeim. Við sækjum innblástur í verk Małgorzata Markiewicz á sýningunni Lekir líkamar, sameiginlegir heimar.

Í skapandi smiðjum á Listasafni Reykjavíkur er lögð áhersla á frjálsa sköpun með fjölbreyttan efnivið. Gestir njóta leiðsagnar reyndra smiðjukennara sem aðlaga verkefnin að aldri og áhuga þátttakenda. Þemu smiðjanna eru aðeins hugsuð sem kveikja að skapandi ferli og þátttakendur hvattir til þess að setja sitt mark á eigin listaverk.

Á öllum barna og fjölskylduviðburðum Listasafns Reykjavíkur er gert ráð fyrir því að börn komi ásamt fullorðnum fjölskyldumeðlimum og njóti samverunnar.

Frítt inn á söfn Listasafns Reykjavíkur fyrir fullorðna í fylgd barna allt vetrarfríið og fjölbreytt dagskrá í boði fyrir barnafjölskyldur.