Haustfrí í Ásmundarsafni | Undraland: Opin vinnustofa í Ásmundarsafni
til

Haustfrí í Ásmundarsafni | Undraland: Opin vinnustofa í Ásmundarsafni
Ásmundarsafn
til
Verið hjartanlega velkomin í Undraland í Ásmundarsafni – opna vinnustofu þar sem áhersla er lögð á samveru og lifandi sköpun byggða á aðferðum Ásmundar Sveinssonar.
Undraland: Opin vinnustofa býður börnum, fjölskyldum og öllum sem eiga leið um safnið að taka þátt í skapandi ferli þar sem unnið er með form, efni og hugmyndir á opinn og aðgengilegan hátt. Í vinnustofunni er athyglinni beint að vinnuaðferðum Ásmundar Sveinssonar – hvernig hann vann í gegnum tilraunir, endurtekningar og náið samtal við efnið. Lögð er áhersla á einfaldan og fjölbreyttan efnivið og handverkslega nálgun, þar sem ferlið sjálft skiptir meira máli en endanleg niðurstaða.
Gestir geta komið og farið að vild, dvalið stutt eða lengur og tekið þátt á sínum forsendum, einir, með öðrum eða í samveru ólíkra kynslóða.
Á öllum barna og fjölskylduviðburðum Listasafns Reykjavíkur er gert ráð fyrir því að börn komi ásamt fullorðnum fjölskyldumeðlimum og njóti samverunnar.
Frítt inn á söfn Listasafns Reykjavíkur fyrir fullorðna í fylgd barna allt vetrarfríið og fjölbreytt dagskrá í boði fyrir barnafjölskyldur.