Haustfrí á Kjarvalsstöðum | Gullmávurinn – Bátasmiðja
til

Haustfrí á Kjarvalsstöðum | Gullmávurinn – Bátasmiðja
Kjarvalsstaðir
til
Jóhannes Kjarval átti lítinn seglbát sem bar nafnið Gullmávurinn. Í þessari smiðju smíðum við okkar eigin litlu báta úr ýmsum efnivið og sjáum hvort við getum ekki látið þá fljóta.
Í skapandi smiðjum á Listasafni Reykjavíkur er lögð áhersla á frjálsa sköpun með fjölbreyttan efnivið. Gestir njóta leiðsagnar reyndra smiðjukennara sem aðlaga verkefnin að aldri og áhuga þátttakenda. Þemu smiðjanna eru aðeins hugsuð sem kveikja að skapandi ferli og þátttakendur hvattir til þess að setja sitt mark á eigin listaverk.
Á öllum barna og fjölskylduviðburðum Listasafns Reykjavíkur er gert ráð fyrir því að börn komi ásamt fullorðnum fjölskyldumeðlimum og njóti samverunnar.
Frítt inn á söfn Listasafns Reykjavíkur fyrir fullorðna í fylgd barna allt vetrarfríið og fjölbreytt dagskrá í boði fyrir barnafjölskyldur.