Gjörningur | Karin Sander: Fólk á steinstöplum
til

Gjörningur | Karin Sander: Fólk á steinstöplum
Hafnarhús
til
Gjörningurinn fer fram í Portinu í Hafnarhúsi í beinu framhaldi af samtali Karinar Sander og sýningarstjóra sýningarinnar Karin Sander: 1957–2057.
Í gjörningnum Fólk á steinstöplum eftir Karin Sander eru sýningargestir settir í hlutverk lifandi höggmynda. Hver og einn þáttakandi stendur á litlum steinsteyptum hellusteini og reynir í sömu andrá að halda jafnvægi.
Portið í Listsafni Reykjavíkur umbreytist í lifandi sýningarvettvang þar sem mörkin milli skúlptúrs og manneskju verða óljós. Gjörningurinn beinir sjónum að nærveru, líkama og jafnvægi, en um leið að hlutverki einstaklingsins í sameiginlegu rými.
Karin Sander er heimsþekkt þýsk listakona sem hefur ræktað tengsl við Ísland allt frá fyrstu heimsókn fyrir þrjátíu árum. Mörg verka hennar eru innblásin af náttúru landsins, menningu og samfélagi.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.