Gjörningur | FERRO, GUDMUNDSSON, MILISKOVIĆ
til

Gjörningur | FERRO, GUDMUNDSSON, MILISKOVIĆ
Hafnarhús
til
Gjörningurinn FERRO, GUDMUNDSSON, MILISKOVIĆ eftir Branko Milisković fer fram fimmtudaginn 25. júní frá 10-22.00 í Hafnarhúsi.
Listamaðurinn Branko Milisković flytur tólf tíma lestur á völdum bréfum úr skjalasafni Erró frá galleríeigendum, samstarfsaðilum, yfirvöldum og vinum. Gjörningurinn verður virkjaður í mismunandi rýmum safnsins.
Með því að færa einkasamræður inn í opinbert og lifandi samhengi varpar verkið ljósi á félagslegar og persónulegar hliðar listsköpunarinnar og nálgast skjalasafnið sem lifandi vettvang túlkunar.
Branko Milisković (f. 1982) er gjörninga- og miðlalistamaður sem vinnur á sviði gjörninga, myndbands, hljóðs, ljósmyndunar og texta. Hann hlaut menntun í Belgrad, Haag og Hamborg og hefur sýnt verk sín víða um heim frá árinu 2005 í Evrópu og Norður-Ameríku. Verk hans hafa verið birt í ritum um samtíma gjörningalist og eru í eigu stofnana og einkasafnara víðs vegar um heim.
Gjörningurinn fer fram á ensku.
Með stuðningi frá Culture Moves Europe / Goethe-Institut.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.
Mynd: Bojana Janjić