Fjölskyldusunnudagur: Lúsíuhátíðar smiðja
til

Fjölskyldusunnudagur: Lúsíuhátíðar smiðja
Kjarvalsstaðir
til
Komdu með fjölskylduna á skapandi smiðju sem sækir innblástur í sænska Lúsíuhefð, en Lúsíuhátíð er haldin ár hvert þann 13. desember.Smiðjan er haldin í Hvammi á Kjarvalsstöðum.
Börn geta skreytt sitt eigið Lúsíukerti eða búið til handgert jólakort til að taka með sér heim. Smiðjan er innblásin af jólaskrauti og hátíðarhefðum.
Piparkökur fyrir öll börn!
Umsjón með smiðjunni hefur safnkennarinn Mikaela Granath, sem talar sænsku og ensku. Íslenskumælandi gestir eru að sjálfsögðu einnig hjartanlega velkomnir.
Skemmtileg og skapandi stund fyrir alla fjölskylduna!