Fara beint í efni

Barna­menn­ing­ar­hátíð | Opnun­ar­hátíð UNGA sviðslista­hátíð fyrir börn

til

Barnamenningarhátíð | Opnunarhátíð UNGA sviðslistahátíð fyrir börn

Barnamenningarhátíð | Opnunarhátíð UNGA sviðslistahátíð fyrir börn

Hafnarhús

til

Opnunarhátíð UNGA verður sumardaginn fyrsta kl 14.00 í Hafnarhúsi.

UNGI er alþjóðleg sviðslistahátíð fyrir börn sem hefur verið haldin annað hvert ár í Reykjavík frá árinu 2013 í tengslum við Barnamenningarhátíð. Hátíðin hefur boðið upp á innlendar og erlendar sviðslistasýningar fyrir börn og ungmenni auk smærri viðburða.

Menningarráðherra Logi Einarsson setur hátíðina og í framhaldinu kemur Leikhópurinn Lotta með skemmtilega söngvasyrpu.

Opnunarhátíðinni lýkur með sirkushópnum Hringleik sem kynnir nýtt verk sem heitir Sjómennirnir.

Nánari upplýsingar um hátíðina má finna á ungifestival.is