Barnamenningarhátíð 20.–26. apríl | Undraland: Opin vinnustofa í Ásmundarsafni
til

Barnamenningarhátíð 20.–26. apríl | Undraland: Opin vinnustofa í Ásmundarsafni
Ásmundarsafn
til
Verið hjartanlega velkomin í Undraland í Ásmundarsafni – opna vinnustofu þar sem áhersla er lögð á samveru og lifandi sköpun byggða á aðferðum Ásmundar Sveinssonar.
Undraland: Opin vinnustofa býður börnum, fjölskyldum og öllum sem eiga leið um safnið að taka þátt í skapandi ferli þar sem unnið er með form, efni og hugmyndir á opinn og aðgengilegan hátt. Í vinnustofunni er athyglinni beint að vinnuaðferðum Ásmundar Sveinssonar – hvernig hann vann í gegnum tilraunir, endurtekningar og náið samtal við efnið. Lögð er áhersla á einfaldan og fjölbreyttan efnivið og handverkslega nálgun, þar sem ferlið sjálft skiptir meira máli en endanleg niðurstaða.
Á Barnamenningarhátið verður boðið upp á fjórar smiðjur fyrir börn og fullorðna. Hver smiðja tekur fyrir ólíkar leiðir í sköpun og kynnir mismunandi nálganir að efninu. Gestir geta komið og farið að vild, dvalið stutt eða lengur og tekið þátt á sínum forsendum, einir, með öðrum eða í samveru ólíkra kynslóða.