Fara beint í efni

Barna­menn­ing­ar­hátíð 20.–26. apríl | Sýning nemenda Lauga­lækja­skóla

til

Barnamenningarhátíð 20.–26. apríl | Sýning nemenda Laugalækjaskóla

Barnamenningarhátíð 20.–26. apríl | Sýning nemenda Laugalækjaskóla

Hafnarhús

til

Sýning á verkum nemenda Laugalækjaskóla í Hafnarhúsi 20.–26. apríl.

Verkefnið byggir á heimsókn nemenda á sýningu Kristínar Gunnlaugsdóttur, Ósagt, þar sem þeir kynntust fjölbreyttri myndlistarnálgun hennar. Í kjölfarið fóru fram umræður um verkin og nemendur unnu í hópum að eigin sköpun, undir áhrifum frá völdum verkum listakonunnar.

Útkoman er fjölbreytt safn verka þar sem sjá má persónulegar túlkanir nemenda á viðfangsefnum Kristínar.

Þar má meðal annars finna tilbrigði við verkið „Barnið (1997)“, þar sem kúlulaga formið fær nýja merkingu í höndum nemenda. Önnur verk sækja innblástur í litagleði og glimmerheim Kristínar sem birtist á óvæntum stöðum á sýningunni.

Eitt umfangsmikið hópverk er unnið með vísun í portrett verk Kristínar, þar sem nemendur nálguðust þá hugmynd að hvert portrett geymi sína eigin sögu. Sú nálgun er þróuð áfram með því að vinna með þekktar konur úr mannkynssögunni, þar sem hver og ein ber með sér sína eigin sögu.

Á sýningunni eru einnig skúlptúrar og önnur verk sem bera vitni um fjölbreytta útfærslu og skapandi nálgun nemenda á verkefnið.