Árskorts­hafar | Innlit í lista­verka­geymslur Hafn­ar­húss og leið­sögn um Erró

til

Árskortshafar | Innlit í listaverkageymslur Hafnarhúss og leiðsögn um Erró

Árskortshafar | Innlit í listaverkageymslur Hafnarhúss og leiðsögn um Erró

Hafnarhús

til

Við bjóðum árskorthöfum okkar upp á einstakt tækifæri til að heimsækja listaverkageymslur okkar í Hafnarhúsi auk þess að fá leiðsögn um sýninguna Erró: Remix.

Sigurður Trausti Traustason, deildarstjóri safneignar, veitir innsýn í varðveislu og söfnun listaverkanna og Björk Hrafnsdóttir segir frá listamanninum Erró.

Í Hafnarhúsi geymum við Erró safnið en árið 1989 gaf Erró Reykjavíkurborg stórt safn verka sinna, um 2.000 talsins. Safnið hefur vaxið jafnt og þétt síðustu árin því að Erró hefur haldið áfram að bæta við gjöfina og keypt hafa verið verk í safnið – sem telur nú um 4.000 listaverk. Sýningar á safni Errós eiga sér fastan sess í Hafnarhúsinu, en með þeim er leitast við að gefa sem besta mynd af fjölbreyttum áherslum í verkum listamannsins.

Vilji árskorthafi taka með sér gest á viðburðinn þarf sá gestur að borga aðgangseyri inn á safnið. Hámark einn gestur á hvern árskorthafa, athugið að einnig þarf að skrá gestinn á viðburðinn.

Skráningarhlekkur: https://outlook.office.com/book/ListasafnReykjavkurViburir@reykjavik.is/ Hámark 12 manns.